Námskeið 2
Mótaðu þinn eigin gervigreindarvinnubekk
Vinnuumhverfi sem þekkir verkefnin þín og hjálpar þér að halda áfram þar sem frá var horfið.
Námskeiðið skiptist í tvær 3,5 klukkustunda vinnulotur með heimaverkefni á milli. Með tilbúnum skrám og leiðsögn setur þú upp fyrstu útgáfu af þínum eigin gervigreindarvinnubekk í Claude CoWork.
Þú tengir verkefni við möppur á tölvunni þinni og skipuleggur skrár, vinnureglur og mikilvægar upplýsingar. Þannig getur gervigreindin fylgst með stöðu verkefnanna og unnið betur með þér.
Þú tengir hana einnig við valin forrit og vefi svo hún geti framkvæmt afmörkuð verkefni undir þinni leiðsögn. Engin forritunarkunnátta er nauðsynleg.
Í fyrri vinnulotunni setur þú vinnubekkinn upp og byrjar að nota hann. Milli vinnulota prófar þú hann í eigin verkefnum og vinnur stutt heimaverkefni. Í seinni vinnulotunni nýtir þú reynsluna til að bæta vinnubekkinn og laga hann betur að þínu vinnulagi.
Að námskeiði loknu getur þú gefið gervigreind skýr verkefni, látið hana vinna beint með skrár og möppur á tölvunni þinni og stýrt vinnunni með yfirferð og endurgjöf. Þannig verður hún samstarfsmaður sem þekkir verkefnin þín og vinnulagið.
VINNULOTURNAR
Lærðu að stýra samstarfinu við gervigreind
Í vinnulotu 1 lærir þú að fara frá stökum samtölum við gervigreind yfir í skipulagt gervigreindarvinnuumhverfi sem vinnur með skrárnar þínar, verkefnin og samhengið. Þú mótar fyrstu virku útgáfuna af vinnubekknum og byrjar að nota hann í Claude CoWork. Milli vinnulota prófar þú vinnubekkinn í eigin verkefnum. Í vinnulotu 2 nýtir þú reynsluna til að bæta vinnulagið og gera það að hluta af daglegri vinnu.
AFRAKSTUR NÁMSKEIÐSINS
Þetta tekur þú með þér
- Skilur takmörk langra spjallþráða við gervigreind og veit hvenær þarf að rifja upp samhengi eða byrja nýjan þráð
- Tileinkar sér vinnulag til að skrá og uppfæra stöðu verkefna fyrir gervigreindina
- Öðlast færni til að fela gervigreind afmörkuð verkefni
- Lærir að móta samstarfið við gervigreind þar sem þú ert við stjórnvölinn
- Lærir að laga vinnubekkinn að eigin verkefnum og þörfum
- Gerir gervigreindina að reyndum samstarfsmanni sem þekkir verkefnin þín og vinnulagið
- Vinnubekkurinn
- Heldur utan um verkefnin og samhengið
- Gervigreindin
- Framkvæmir afmörkuð verkefni
- Þú
- Stýrir og tekur ákvarðanir
FYRIR HVERJA
Fyrir fólk sem vill gera gervigreind að öflugum samstarfsmanni
Námskeiðið hentar þeim sem hafa hagnýtan grunn í notkun gervigreindar og vilja geta meira, vinna betur og koma hlutunum í verk með skipulögðu gervigreindarvinnuumhverfi.
Námskeiðið hentar þeim sem:
- Hafa lokið Námskeiði 1 hjá BrainBox eða öðlast sambærilega reynslu
- Vilja byggja upp eigið vinnuumhverfi sem þekkir verkefnin þeirra og vinnur með þeim
- Eru tilbúnir til að vinna með eigin verkefni og þróa nýtt vinnulag í tveimur verklegum vinnulotum
LEIÐBEINANDI
Stefán Gunnarsson
Tölvunarfræðingur og stofnandi BrainBox
Stefán Gunnarsson er tölvunarfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og hefur yfir áratugar reynslu sem frumkvöðull og stjórnandi í tæknigeiranum. Hann hefur víðtæka reynslu af því að nýta og innleiða gervigreind markvisst í vinnuumhverfi og kennir út frá raunverulegum verkefnum og eigin reynslu.
SPURT OG SVARAÐ
Algengar spurningar
Þarf ég að hafa lokið námskeiði 1?
Ekki endilega. Við mælum með Námskeiði 1 hjá BrainBox sem æskilegum undirbúningi eða töluverðri reynslu af notkun gervigreindar.
Þarf ég að vera með áskrift að Claude?
Já. Virk áskrift að Claude er nauðsynleg þar sem unnið er í Claude CoWork á námskeiðinu.
Get ég notað læsta vinnutölvu?
Það fer eftir aðgangsstýringum vinnustaðarins. Eigin fartölva er öruggasti kosturinn ef aðgangur á vinnutölvunni er takmarkaður.
Virkar vinnubekkurinn aðeins í Claude CoWork?
Nei. Hann getur einnig nýst með öðrum gervigreindarverkfærum sem geta unnið með skrár, verkefni og samhengi.
Get ég sótt um endurgreiðslu hjá stéttarfélagi?
Reglur og fjárhæðir eru mismunandi milli menntasjóða stéttarfélaga. Við aðstoðum þig gjarnan við að kanna réttinn þinn. Sendu okkur tölvupóst með nafni stéttarfélagsins þíns.
SKRÁNING
Taktu stökk fram á við í starfi
Hafðu samband til að fá upplýsingar um komandi námskeið eða sérsniðna leið fyrir hóp.