Námskeið

Gervigreind sem eflir þig í starfi

Þú lærir ekki bara að nota gervigreind. Þú byggir upp þinn eigin gervigreindarvinnubekk sem heldur utan um verkefnin þín, styður vinnuna þína og gerir þig að öflugri útgáfu af sjálfum þér.

Gervigreindin verður samstarfsmaður sem þekkir verkefnin þín og vinnulag.

Námsleið

Byrjaðu á hagnýtum grunni og byggðu síðan upp þitt eigið gervigreindarvinnuumhverfi.

Við köllum þetta gervigreindarvinnubekk: skipulagt vinnuumhverfi í þinni eigu sem varðveitir samhengi um verkefnin þín og gerir gervigreindina að reyndum samstarfsmanni sem þekkir vinnulagið þitt.

3,5 tímar

Námskeið 1

Náðu betri tökum á gervigreind og nýttu hana í daglegri vinnu á skipulagðan og ábyrgan hátt.

  • Notaðu gervigreind með texta og raddskipunum
  • Prófaðu viðbætur (plugins) fyrir tölvupóst og forrit eins og Excel og Word
  • Lærðu að stofna og nota verkefni (Projects)
Skoða
2 × 3,5 tímar

Námskeið 2

Byggðu upp þinn eigin gervigreindarvinnubekk og umbreyttu vinnulaginu þínu á markvissan hátt.

  • Settu upp gervigreindarvinnubekk í Claude CoWork
  • Tengdu verkefni við möppur og settu upp textaskrár með vinnureglum fyrir gervigreindina
  • Settu upp tengingar milli gervigreindar, valinna forrita og vefja
Skoða

Eftir námskeið 2

Þú ferð heim með þinn eigin gervigreindarvinnubekk

Vinnubekkur á þinni tölvu

Þú færð tilbúnar textaskrár og lagar þær að verkefnum þínum. Gögnin og leiðbeiningarnar eru á tölvunni þinni og undir þinni stjórn.

Uppsetning með leiðsögn

Við setjum vinnubekkinn upp með þér og komum honum í notkun.

Skírteini

Þú færð staðfestingu og skírteini á því að þú hefur lokið námskeiðinu.

Bókaðu bæði námskeiðin sem eina samfellda vegferð Samtals 10,5 tímar 10% afsláttur Skoða

Frá fræðslu yfir í innleiðingu

BrainBox hjálpar teymum, fyrirtækjum, stofnunum og félögum að greina tækifæri, byggja upp vinnuferli og innleiða gervigreind í raunverulega vinnu.

Vinnustofur

Markvissar vinnustofur fyrir teymi, stjórnendur og starfshópa sem vilja vinna með eigin verkefni.

Vinnuferli og vinnubekkir

Við hjálpum til við að færa endurtekin verkefni úr stökum spjöllum yfir í skipulagt vinnuumhverfi.

Innleiðing og samþætting

Stuðningur við að tengja gervigreind við gögn, verkfæri og vinnuferli þar sem það er öruggt og raunhæft.

Sérsniðnar vinnuleiðir

Lengri fræðslu- og innleiðingarverkefni fyrir teymi, fyrirtæki, stofnanir og félög.

Viltu nýta gervigreind betur í vinnunni?

Hafðu samband til að ræða námskeið, vinnustofur eða stuðning við að innleiða gervigreind í raunverulega vinnu.

brainbox@brainbox.is