← Öll námskeið

Heildarnámsleið

Frá einstökum samtölum yfir í eigin gervigreindarvinnubekk

Á 10,5 klukkustundum, í þremur verklegum vinnulotum, ferð þú frá stökum spjallþráðum við gervigreind yfir í að móta þinn eigin gervigreindarvinnubekk.

Í fyrstu vinnulotunni lærir þú að skilja gervigreind betur, prófar möguleika hennar og öðlast öryggi í notkun. Þú æfir samskipti með texta og raddskipunum, vinnur með verkefni og viðbætur og lærir að yfirfara niðurstöður og beita eigin dómgreind.

Í næstu tveimur vinnulotum setur þú upp gervigreindarvinnubekk í Claude Cowork. Þú tengir hvert verkefni, sem kallast Project í Claude, við ákveðna möppu á tölvunni þinni. Þar notar þú einfaldar textaskrár sem gervigreindin býr til með þér. Þær halda utan um stöðu verkefnisins, ákvarðanir, vinnureglur og næstu skref. Claude les upplýsingarnar og aðstoðar þig við að halda þeim uppfærðum eftir því sem verkefninu miðar áfram.

Möppurnar og upplýsingarnar eru áfram undir þinni stjórn. Þótt kennt sé í Claude Cowork er vinnubekkurinn ekki bundinn við eitt gervigreindarforrit. Sama skipulag má síðar nota með öðrum gervigreindarforritum eins og til dæmis Codex frá OpenAI.

Þannig fær gervigreindin verkefnasamhengi sem varðveitist á milli vinnulota. Hún getur þá unnið með þér eins og reyndur samstarfsmaður sem þekkir verkefnin, vinnulagið og það sem hefur áður verið ákveðið.

NÁMSLEIÐIN

Frá grunnfærni að eigin gervigreindarvinnubekk

Í Námskeiði 1 lærir þú að nýta gervigreind í verkefnum. Í Námskeiði 2 byggir þú á þeim grunni, setur upp þinn eigin vinnubekk og lærir að stýra samstarfinu við gervigreind.

1 3,5 tímar

Námskeið 1

Lærðu að nýta gervigreind í verkefnum

Þú skilur tæknina betur, lærir að veita gervigreind viðeigandi samhengi og mótar gagnlegri niðurstöður.

  • Notaðu gervigreind með texta og raddskipunum
  • Prófaðu viðbætur (plugins) fyrir tölvupóst, Excel og Word
  • Lærðu að stofna og nota verkefni (Projects)
Skoða námskeið 1
2 2 × 3,5 tímar

Námskeið 2

Mótaðu þinn eigin gervigreindarvinnubekk

Þú byggir fyrstu virku útgáfuna af þínum eigin vinnubekk og prófar hvernig hann nýtist í þinni vinnu.

  • Tengdu verkefni við möppur á tölvunni þinni
  • Settu upp textaskrár sem gefa gervigreindinni vinnureglur
  • Tengdu gervigreind við forrit og vefi til að framkvæma verkefni
Skoða námskeið 2

AFRAKSTUR

Gerðu gervigreind að öflugum samstarfsmanni

Að námsleiðinni lokinni hefur þú bæði hagnýta færni og eigin gervigreindarvinnubekk. Þú getur látið gervigreind vinna með verkefnin þín og stýrt samstarfinu á þínum forsendum.

  • Skilur betur hvað gervigreind getur gert og hvar takmörk hennar liggja
  • Lærir að þróa niðurstöður í samtali við gervigreind
  • Beitir eigin dómgreind og sannreynir það sem skiptir máli
  • Tileinkar þér vinnulag sem heldur gervigreindinni upplýstri um verkefnin svo hún verði gagnlegri
  • Lærir að móta samstarfið við gervigreind þar sem þú ert við stjórnvölinn
  • Gerir gervigreindina að reyndum samstarfsmanni sem þekkir verkefnin þín og vinnulagið

Fyrir hverja

Fyrir fólk sem vill fara alla leið

Heildarnámsleiðin hentar fólki sem vill læra að nýta gervigreind markvisst í daglegu starfi og byggja upp vinnulag sem heldur áfram að þróast eftir námskeiðið.

  • Fólk sem hefur prófað gervigreind en vill læra bestu aðferðirnar
  • Fólk sem vill byggja upp varanlegt gervigreindarumhverfi sem varðveitir samhengi og gögn
  • Fólk sem vill gera gervigreindina að samstarfsmanni

LEIÐBEINANDI

Stefán Gunnarsson, leiðbeinandi hjá BrainBox

Stefán Gunnarsson

Tölvunarfræðingur og stofnandi BrainBox

Stefán Gunnarsson er tölvunarfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og hefur yfir áratugar reynslu sem frumkvöðull og stjórnandi í tæknigeiranum. Hann hefur víðtæka reynslu af því að nýta og innleiða gervigreind markvisst í vinnuumhverfi og kennir út frá raunverulegum verkefnum og eigin reynslu.

Spurt og svarað

Algengar spurningar

Hversu mikla reynslu þarf ég af gervigreind?

Þú þarft ekki tæknilega sérþekkingu. Best er að hafa prófað að spjalla við gervigreind áður og vera tilbúið að vinna með hana á markvissari hátt. Námskeið 1 byggir upp grunninn áður en farið er yfir í vinnubekkinn í Námskeiði 2.

Get ég tekið námskeiðin hvort í sínu lagi?

Já. Námskeið 1 stendur sjálfstætt og hægt er að taka Námskeið 2 sérstaklega með sambærilegan hagnýtan grunn. BrainBox mælir þó með að taka námskeiðin saman svo þú getir byggt áfram meðan reynslan úr Námskeiði 1 er fersk. Heildarnámsleiðin veitir jafnframt 10% afslátt.

Þarf ég fartölvu og áskrift að Claude?

Til að taka fullan þátt þarftu fartölvu þar sem þú hefur heimild til að setja upp og nota Claude appið með CoWork. Þú þarft einnig virka áskrift að Claude. Ef þú notar vinnutölvu skaltu ganga úr skugga um fyrir námskeiðið að öryggisreglur og stillingar vinnustaðarins leyfi uppsetningu appsins.

Hvað geri ég á milli vinnulotanna?

Milli vinnulotanna prófar þú vinnubekkinn áfram í eigin verkefnum. Þú skráir hvar þú festist, hvaða spurningar vakna og hvaða leiðbeiningar þig vantar. Þannig mætir þú betur undirbúin í vinnulotu 2 og getur nýtt tímann með kennaranum til að leysa raunveruleg vandamál og bæta vinnubekkinn.

Virkar vinnubekkurinn aðeins í Claude CoWork?

Nei. Þú getur einnig notað vinnubekkinn með öðrum gervigreindarhugbúnaði sem vinnur með skrár og verkefni, eins og Codex frá OpenAI.

Get ég sótt um endurgreiðslu hjá stéttarfélagi?

Reglur og fjárhæðir eru mismunandi eftir menntasjóðum stéttarfélaga. Við aðstoðum þig gjarnan við að kanna réttinn þinn. Sendu okkur tölvupóst með nafni stéttarfélagsins þíns.

Hver er afslátturinn af Heildarnámsleiðinni?

Heildarnámsleiðin kostar 84.900 kr. Samanlagt verð Námskeiðs 1 og Námskeiðs 2 er 94.800 kr., þannig að þú sparar 9.900 kr. eða rúmlega 10%.