Námskeið 1
Lærðu að nýta gervigreind í verkefnum
Á þessu 3,5 klukkustunda verklega námskeiði lærir þú að skilja tæknina betur, prófa möguleika hennar og öðlast öryggi í notkun gervigreindar.
Þú æfir samskipti við gervigreind með texta og raddskipunum og prófar að láta hana útbúa tölvupóstsdrög beint í tölvupóstforritinu, ef vinnustaðurinn heimilar tenginguna.
Þú prófar einnig valdar viðbætur (plugins) til að tengja gervigreind við önnur verkfæri.
Að lokum lærir þú að stofna og nota verkefni (Projects) til að halda samtölum, skrám og leiðbeiningum saman á einum stað.
Á NÁMSKEIÐINU
Dýpkaðu skilning þinn á gervigreind
Á námskeiðinu færðu skýrar útskýringar á því hvernig gervigreind virkar og hvernig þú getur nýtt hana í verkefnum. Þú prófar að gefa henni viðeigandi samhengi úr vinnunni, þekkingu þinni og reynslu svo hún geti aðstoðað þig betur. Með skýrari spurningum og samtali fram og til baka lærir þú að móta gagnlegri niðurstöður.
AFRAKSTUR NÁMSKEIÐSINS
Þetta tekur þú með þér
- Skilur betur hvað gervigreind getur gert og hvar takmörk hennar liggja
- Lærir að þróa niðurstöður í samtali við gervigreind
- Áttar þig á því að því betra samhengi sem gervigreindin hefur um stöðu verkefnanna þinna, því betur getur hún aðstoðað þig
- Tileinkar þér vinnulag til að yfirfara og sannreyna niðurstöður gervigreindar
- Beitir eigin dómgreind þegar svör gervigreindar eru ófullkomin eða óviss
- Ferð heim með traustan grunn til að halda áfram að læra, prófa og þróa færni þína í notkun gervigreindar
Kennslan fylgir samfelldri sögu og kunnuglegum verkefnum svo þátttakendur sjái hvernig vinnan þróast frá fyrstu spurningu yfir í drög, yfirferð og niðurstöðu. Sagan styður við kennsluna en aðaláherslan er alltaf á það sem þú getur nýtt í eigin vinnu.
- Samtalið
- Byggir upp samhengi
- Gervigreindin
- Styður við vinnuna
- Þú
- Yfirfer og tekur ákvarðanir
FYRIR HVERJA
Fyrir fólk sem vill komast lengra en einföld spjöll við gervigreind og ná betri tökum á henni
Námskeiðið hentar þeim sem hafa prófað gervigreind en vilja skilja hana betur, læra að eiga gagnlegra samtal við hana og prófa hvernig hún getur nýst í eigin verkefnum og verkfærum. Engin tæknileg sérþekking er nauðsynleg.
Námskeiðið hentar þeim sem:
- Hafa prófað að spjalla við gervigreind en vilja ná betri tökum á henni
- Vilja skilja gervigreind betur og nýta hana í eigin verkefnum
- Vilja prófa að tengja einkatölvupóst eða vinnupóst, ef það er heimilt, við gervigreindina og prófa valdar viðbætur undir leiðsögn
LEIÐBEINANDI
Stefán Gunnarsson
Tölvunarfræðingur og stofnandi BrainBox
Stefán Gunnarsson er tölvunarfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og hefur yfir áratugar reynslu sem frumkvöðull og stjórnandi í tæknigeiranum. Hann hefur víðtæka reynslu af því að nýta og innleiða gervigreind markvisst í vinnuumhverfi og kennir út frá raunverulegum verkefnum og eigin reynslu.
Spurt og svarað
Algengar spurningar
Hversu mikla reynslu þarf ég af gervigreind?
Þú þarft ekki mikla reynslu eða tæknilega sérþekkingu. Best er að hafa prófað að spjalla við gervigreind áður og vera tilbúið að vinna með hana á markvissari hátt. Algjör byrjandi getur fylgt námskeiðinu, en kennslan er ekki eingöngu hugsuð sem kynning fyrir fólk sem hefur aldrei notað gervigreind.
Þarf ég eigin fartölvu og áskrift að Claude?
Nei. Þú getur fylgt kennslunni án fartölvu eða áskriftar. Til að taka þátt í tölvupósts- og viðbótaæfingum er þó mælt með fartölvu sem þú mátt nota með Claude og virkri áskrift að Claude með aðgangi að viðbótum (plugins).
Er námskeiðið tæknilegt?
Ekki er krafist forritunar eða tæknilegrar sérþekkingar. Áherslan er á samtal, verkefni og gagnrýna yfirferð.
Þarf ég að fara áfram í Námskeið 2?
Nei. Námskeið 1 stendur sjálfstætt. Námskeið 2 er mögulegt framhald fyrir þau sem vilja byggja upp skipulagðara vinnuumhverfi.
Get ég sótt um endurgreiðslu hjá stéttarfélagi?
Reglur og fjárhæðir eru mismunandi eftir sjóðum. Við aðstoðum þig gjarnan við að kanna réttinn þinn. Sendu okkur tölvupóst með nafni stéttarfélagsins þíns.
Skráning
Hefurðu áhuga á námskeiðinu?
Hafðu samband til að fá upplýsingar um komandi námskeið eða sérsniðna leið fyrir hóp.